Já það er víst komið að mér að skrifa færslu 
Ég hef nú ekki mikið að segja.... eða réttara sagt alltof mikið að segja því árið 2007 var eitt það skemmtilegasta sem ég hef upplifað! Sérstaklega sumarið. Svo var náttlega klásus um haustið og ég er mjöööög ánægð með árangurinn þar, var númer 33 inn í deildina. Sátt við það 
Skólinn er byrjaður á fullu núna og í gær var fyrsti verklegi tíminn, lærði að taka blóðþrýsting á gamla mátann sem og athuga lífsmörk, s.s. púls og öndun. Og svo vorum við látnar hitamæla hvora aðra en hey... sem betur fer bara með munnmæli
Hahaha 
Já best að nefna jólaballið á Nasa
Páll Óskar að spila og það var dúndurfjör!!! Ég s.s. var með saumaklúbb/fyrirparty og bauð í mat sem heppnaðist bara mjög vel
Svo var haldið á ballið og tjúttað af sér rassinn
Æðislegt kvöld bara enda er Palli partíkóngur Íslands!!!
Annars voru jólin og áramótin æðisleg... vil bara þakka öllum kærlega fyrir mig
Sérstaklega mömmu og pabba... þau eru æði. Ég er alltaf að hugsa það hvað ég er heppin með foreldra... alltaf tilbúin að hjálpa mér
Og trúið mér... það þarf sko á að halda. T.d. fór reykskynjarinn að pípa um miðja nótt í prófunum
Ég náði reyndar að rota hann með flösku ef ég stóð á stól, en ég náði náttlega ekkert upp í hann annars. En haldiði að pabbi hafi ekki mætt bara strax eftir vinnu og skipt um batterí og svona
Ég þurfti ekki einu sinni að biðja um það... hann mætti bara
Og mamma, hún er alltaf að hjálpa mér með e-ð
Get ekki einu sinni talið það upp, þetta er alltaf
Alltaf! Æi ég vil bara þakka þeim fyrir... eins og ég segi þá er ég mjög rík að eiga svona yndislega foreldra, bróður, fjölskyldu og vini 
Já og áramótin... úff! Þá var djammað! Ég og Fjóla vorum á skrallinu til 10 um morguninn! Þvílíkt og annað eins.
Nú svo eftir áramót tók við biðin endalausa eftir einkunnunum, fékk þær loks daginn áður en skólinn átti að byrja
Er bara mjööööög sátt... sérstaklega með efnafræðina. Fékk 2 í fyrra (skamm skamm) en fékk 8 núna!!!!! Vúhú!!!!!
Ég hélt líka frænkuboð seinustu helgi, s.s. úr föðurfjölskyldunni
Það var rosa gaman og skálað í freyðivíni sem Halldór frændi bauð uppa
Svo enduðum ég, Sigrún Pálína og Pálína á skrallinu í góðum fíling á Apótekinu. Ég er alveg að fíla þann stað
Og já við hittum nokkra nágranna mína og spjölluðum við þá
Þetta voru Fáfnismenn... og voru alveg ágætis gaurar bara 
Daginn eftir var svo rólegur dagur... Arnar Freyr kom og við gerðum okkur pizzu í pizzaofninum og horfðum á Knocked Up 
Ó og annað
Árið 2007 fékk ég 2 litla frændu
Obbosslega sætir báðir 2
Birgir Alex (sonur Önnu og Gunna) fæddist 12. september og Sigurður Snorri (sonur Nóa og Oddu) kom aðfaranótt þorláksmessu, 23. des 
Svo fékk ég litla frænku í byrjun árs
Ónefnd Markúsdóttir (dóttir Karenar og Markúsar) kom í heiminn 3. jan, aðeins á undan áætlun. Hún var svona rosa spennt að hitta mömmu sína og pabba
Alger dúlla! En öllum börnum heilsast vel
Til hamingju með þetta allir 
Jæja ég er búin að henda inn myndum af íbúðinni
http://public.fotki.com/casademaria/ Endilega kíkja og kommenta. Lykilorðið er íbúðarnúmerið mitt.... ef þið vitið það ekki þá bara senda mér póst á mariaog@msn.com og ég sendi ykkur svar 
Jæja... best að fara að henda sér í lærdóminn.
María hjúkka kveður 